Við skelltum okkur til Svíþjóðar um helgin, nánartiltekið til Mullsjö sem er í smálöndunum, ásamt góðu fólki með því markmiði að renna sér á bretti eða skíðum og til að éta og drekka. Þett var fínt stuð og held ég að þetta verði bara endurtekið að ári. Annars verð ég meira á faraldsfæti þar sem ég er að fara til Luxemborg á fimmtudagsmorgun og kem aftur heim um hádegið á föstudaginn. Strákarnir í ÍSF eru að fara spila þar og ákváðu að taka einn alvöru kall með. Flýg beint frá köben og hitti strákan á LUX. Hef trú á því að þetta verði helv.... mikið stuð. Annars er maður farin að plana sumarið. Er að fara að byrja því að senda umsóknir til einhverja fyrirtækja um vinnu í sumar. Er að að vonast til að geta byrjað bara strax eftir Roskilde-festival. Það eru komin mörg góð og feit bönd til að kikja á. Annars er ég að fara á Rolling Stones í byrjun júní og svo á LIVE daginn eftir það, þannig að þetta á eftir að verða hörku tónleikasumar hjá mér!! :o)
-b
-b
